Reglur í nuddi2018-04-17T11:16:10+00:00

Reglur í nuddi

Nudd hefur margvísleg jákvæð áhrif á heilsu. Nudd er slakandi, verkjastillandi, eykur hreyfigetu og blóðflæði. Nuddarar eru ekki læknar og hafa því ekki heimild til að sjúkdómsgreina fólk. Aðeins þeir nuddarar Natura Spa sem til þess hafa menntun mega hnykkja viðskiptavini og skal það gert í fullu samráði við viðskiptavin. Nudd getur aldrei komið I staðinn fyrir læknismeðferð en getur verið notuð með læknismeðferð.

Það er mikilvægt að nuddþegi upplýsi nuddara um sjúkdóma eða mein svo að nuddarinn geti tekið tillit til þess í meðferð sinni.

Samskipta- og siðareglur í nuddi

  • Nudd er snerting og notaðar eru olíur og krem í meðferðum. Hreinlæti er mikilvægt bæði fyrir nuddarann og nuddþegann og því er mikilvægt að nuddþegi fari í sturtu fyrir nudd. Hreinlæti virkar á báða bóga og skal nuddari vera hreinn og snyrtilegur. Bæði nuddari og nuddþegi getur tekið ákvörðun um að aflýsa nuddi sé persónulegt hreinlæti ekki ásættanlegt.
  • Nuddþegi skal mæta á biðstofu á réttum tíma, hreinn og í slopp. Nuddherbergi er ekki búnngaaðstaða.
  • Stakt nudd er í flestum tilfellum eftir fyrirfram ákveðnu nuddkerfi nema að nuddþeginn óski eftir ákveðnum áherslum í nuddinu (bak, höfuð, fætur o.s.frv). Ef nuddþegi mætir reglulega í nudd er hann hvattur til að vinna með nuddaranum og deila með honum markmiðum með nuddinu.
  • Áfengi/eiturlyf og nudd eiga ekki saman. Bæði nuddari og nuddþegi skulu halda sig frá áfengi a.m.k. 12 tímum fyrir nuddmeðferð. Ef nuddþegi er á bólgueyðandi lyfjum og verkjalyfjum ætti nuddarinn að fá upplýsingar um slíkt.
  • Nuddþegi skal sjálfur ákveða hvort hann eða hún sé íklæddur nærfötum. Viðskiptavini er ávallt pakkað in og aðeins það svæði sem unnið er með er óhulið.
  • Nuddþegar 18 ára og yngri skulu koma í fylgd með fullorðnum og verður foreldri eða forráðamaður að gefa samþykki sitt fyrir nuddinu. Viðskiptavinir mega óska eftir að hafa 3ja aðila hjá sér í nuddi, sé þess óskað. Skal sá aðili þá hlíta reglum um hegðun og samskipti.
  • Natura Spa er fagleg meðferðarstofa sem fylgir ströngum siðareglum. Trúnaður við viðskiptavini er viðhafður, nema ef um er að ræða athafnir og hegðun sem brjóta í bága við lög
  • Nudd hjá Natura Spa er meðferð og á engan hátt kynferðislegs eðils. Kynferðisleg áreitni af hálfu nuddþega eða nuddar, hvort sem er um að ræða athafnir eða orð er ekki liðin. Ef um óviðeigandi tal, grín eða athugasemdir nuddþega eða nuddara er að ræða er nuddi tafalaust slitið. Meðferð sem er slitið vegna óviðeigandi hegðunar nuddþega skal greiðast að fullu. Alvarleg kynferðisleg áreitni eða árás getur verið kærð til lögreglu.

Afbókanir og endurbókanir
Afbókanir í nudd skulu vera með minnst 24 tíma fyrirvara að öðrum kosti er nudd rukkað að fullu. Ef nuddþegi mætir ekki í bókað nudd er hann rukkaður um nuddið.
Nudd á Natura Spa skal ávallt hefjast á réttum tíma. Ef nuddari er seinn fær nuddþegi tímann bættan upp eða afslátt af nuddinu. Ef viðskiptavinur kemur of seint þarf hann að sætta sig við skemmra nudd á fullu verði. Nudd skal greiðast fyrirfram. Natura Spa áskilur sér rétt til að hækka verðskrá með eins mánaðar fyrirvara.